Ísland mætir Hollandi í kvöld í fyrsta leik sínum í undankeppni HM. Leikurinn hefst klukkan 18:45 á Laugardalsvelli.
Fótbolti.net setur saman líklegt byrjunarlið fyrir leikinn en flókið var að setja það saman, spurningarmerkin eru mörg. Hverjar verða í bakvörðunum? Hver verður með Glódísi í miðverðinum? Hverjar verða á köntunum?
Leikurinn í kvöld er í beinni á RÚV og í beinni textalýsingu hér á Fótbolti.net.

Þorsteinn Halldórsson sagði á fréttamannafundi í gær að Sandra Sigurðardóttir myndi spila svo það liggur beinast við að hafa hana í líklegu byrjunarliði. Steini sagði þá að það kæmi ekki til greina að spila þriggja manna vörn.
Hann sagði þá að hann teldi líkur á því að hann myndi koma fjölmiðlamönnum á óvart með liðsvali sínu. Hér að neðan má sjá það lið sem Fótbolti.net telur að byrji leikinn í kvöld.
Athugasemdir