Hver tekur við af Klopp? - Dani Olmo orðaður við Man Utd - Greenwood í skiptum fyrir Gleison Bremer
   sun 21. október 2018 09:00
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson
Vestri framlengir við lykilmenn
Elmar Atli Garðarsson.
Elmar Atli Garðarsson.
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Vestri, sem endaði í þriðja sæti í 2. deild karla í sumar, hefur framlengt við nokkra af lykilmönnum sínum.

Elmar Atli Garðarsson og Pétur Bjarnason, sem báðir voru í liði ársins á lokahófi Fótbolta.net, framlengdu samninga sína um tvö ár.

Elmar Atli er fyrirliði liðsins og var frábær í varnarleiknum hjá Vestra í sumar. Liðið hélt 13 sinnum hreinu á tímabilinu með hann og reynsluboltann Andy Pew í vörninni.

Pétur var frábær á hinum enda vallarins og skoraði 14 mörk. Hann var næstmarkahæstur í 2. deildinni ásamt Andri Júlíussyni, sóknarmanni Kára.

Þá hafa þeir Daniel Osafo-Badu og Daníel Agnar Ásgeirsson einnig framlengt samninga sína. Eins og Pétur og Elmar Atli, þá skrifuðu þeir undir tveggja ára framlengingu.

Samningar Elmars, Péturs, Daniel, Daníels renna út 2020.
Athugasemdir
banner
banner
banner
banner
banner