Liverpool er að vinna að áætlunum um að stækka heimavöll sinn, Anfield, svo hann taki um 60 þúsund áhorfendur.
Íbúum í nágrenni vallarins hefur verið boðið á kynningarfund en í dag tekur leikvangurinn 54.074 áhorfendur.
Árið 2016 var lokið við að stækka aðalstúkuna á Anfield en það kostaði um 100 milljónir punda.

Á heimaleikjum Liverpool gegn Brighton 30. nóvember og Everton þann 4. desember verður sérstakur upplýsingabás fyrir stuðningsmenn þar sem þeir geta fræðst um áætlaða stækkun á leikvangnum.
Athugasemdir