Sam Johnstone, markvörður WBA, var maður leiksins er lið hans tapaði fyrir Manchester United, 1-0, á Old Trafford í kvöld en hann átti margar mikilvægar vörslur í leiknum.
Johnstone er uppalinn hjá Manchester United en var keyptur til WBA fyrir tveimur árum.
Hann varði vel frá sóknarmönnum United í kvöld og var maður leiksins að mati Sky Sports.
Nemanja Matic og Marcus Rashford fengu báðir 5.
Man Utd: De Gea (7), Wan-Bissaka (6), Lindelof (6), Maguire (6), Telles (6), Matic (5), Fred (6), Mata (6), Fernandes (7), Martial (6), Rashford (5).
Varamenn: Cavani (6).
West Brom: Johnstone (8), Furlong (6), Ajayi (7), Bartley (7), Ivanovic (7), Townsend (6), Diangana (7), Gallagher (7), Sawyers (6), Pereira (6), Grant (7).
Varamenn: Robson-Kanu (6), Robinson (6).
Athugasemdir