Arsenal endurnýjar áhuga á Luiz - Man Utd reynir við Todibo - Tottenham vill Sudakov
banner
   sun 21. nóvember 2021 19:11
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson
„Ég veit ekki alveg af hverju hann gerði þetta"
Kalvin Phillips.
Kalvin Phillips.
Mynd: Getty Images
Miðjumaðurinn Kalvin Phillips spilaði í miðverði í dag þegar Leeds tapaði fyrir Tottenham, 2-1, í ensku úrvalsdeildinni.

Phillips spilar vanalega sem miðjumaður en hann tók að sér nýtt hlutverk í dag.

„Ég veit eiginlega ekki af hverju hann (Bielsa) gerði þetta," sagði Phillips eftir leik, spurður að því hvers hann spilaði í miðverði. „Þeir eru mjög hættulegir sóknarlega og við vildum vera tilbúnir fyrir það varnarlega. Ég og Liam Cooper vorum að dekka maður á mann."

„Þetta virkaði mjög vel í fyrri hálfleiknum en við náðum ekki að halda einbeitingu í seinni hálfleik."

Marcelo Bielsa, stjóri Leeds, er mikill hugsuður og það er erfitt að skilja allt sem honum dettur í hug. Hann útskýrði ákvörðun sína betur eftir leik. Hans eigin leikmenn skilja hann stundum ekki alveg.

„Mér fannst hann vera besti kosturinn til að elta Harry Kane þegar hann fer niður til að sækja boltann. Á sama tíma fannst mér Diego Llorente bestur til að elta Son Heung-min."

Þetta virkaði að miklu leyti því Phillips var frábær í leiknum og einn af bestu mönnum vallarins.

Leeds er eftir tapið í dag, tveimur stigum frá fallsæti. „Fótboltinn okkar mun skila okkur fleiri stigum," sagði Phillips.
Athugasemdir
banner
banner
banner