Guimaraes, Silva, Van Persie, Yamal, Gil, Giroud og fleiri í slúðurpakkanum
   sun 21. nóvember 2021 15:28
Brynjar Ingi Erluson
Sjáðu mörkin: Þrumufleygur og konfektsending
Rodri fagnar marki sínu
Rodri fagnar marki sínu
Mynd: EPA
Manchester City er 2-0 yfir gegn Everton í ensku úrvalsdeildinni en bæði mörk heimamanna voru af dýrari gerðinni.

Raheem Sterling gerði fyrra mark City eftir frábæra sendingu frá Joao Cancelo. Hann fékk boltann af 40 metrunum og tók utanfótarspyrnu inn fyrir á Sterling sem skoraði.

Rodri gerði þá annað mark City í síðari hálfleiknum. Boltinn var hreinsaður út fyrir teiginn og mætti Rodri á ferðinni og þrumaði honum í netið.

Stoðsendingin hjá Cancelo

Markið hjá Rodri
Athugasemdir
banner
banner