Amorim, Frank, Ten Hag, De Bruyne, Isak, Olise, Gyökeres og fleiri góðir í slúðurpakka dagsins
banner
   mán 21. nóvember 2022 09:20
Elvar Geir Magnússon
Daníel Geir Moritz spáir í England - Íran
Daníel Geir Moritz á vellinum.
Daníel Geir Moritz á vellinum.
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
HM í fótbolta hófst í gær með sigri Ekvador gegn gestgjöfum Katar í A-riðli. Í dag fer B-riðillinn af stað og fyrsti leikur dagsins er viðureign Englands og Íran.

Sjá einnig:
HM í dag - Englendingar hefja daginn

Með þessum tveimur liðum í riðli eru Bandaríkin og Wales sem mætast í kvöld.

Spámaður leiksins fyrir Fótbolta.net er Daníel Geir Moritz, formaður knattspyrnuráðs ÍBV og sérstakur áhugamaður um enska landsliðið.

England 2 - 1 Íran (13:00 í dag)
Mann langar að spá Íran sigur fyrir okkar mann Shahab en þeir tapa samt. England mun verða nokkuð sátt með 2-1 sigur þrátt fyrir engan glæsibrag. Foden verður á meðal markaskorara og Pickford gerir eitthvað skrýtið sem honum verður ekki refsað fyrir.





Athugasemdir
banner