Rashford yfirgefur Man Utd - Tottenham á eftir Alberti
   mán 21. desember 2020 17:00
Magnús Már Einarsson
Ancelotti hæstánægður með fyrsta árið hjá Everton
Mynd: Getty Images
Carlo Ancelotti, stjóri Everton, fagnar í dag eins árs starfsafmæli sínu hjá félaginu.

Ancelotti tók við Everton af Marco Silva þegar liðið var í 15. sæti í ensku úrvalsdeildinni og nálægt fallsvæðinu.

Ítalinn náði að hjálpa Everton af fallsvæðinu á síðasta tímabili en liðið endaði í 12. sæti í deildinni.

Everton er í dag í 4. sæti í ensku úrvalsdeildinni en liðið hefur unnið Chelsea, Leicester og Arsenal í síðustu leikjum.

Ancelotti birti færslu á Twitter í dag þar sem hann fagnaði fyrsta árinu í starfi og sagðist vera spenntur fyrir framtíðinni.

Athugasemdir
banner
banner
banner
banner