Barcelona og Man City vilja Olmo - Liverpool gæti reynt við Kudus - Chelsea og Barcelona hafa áhuga á Dybala
   mán 21. desember 2020 21:54
Sæbjörn Þór Þórbergsson Steinke
England: Tammy kláraði dæmið fyrir Chelsea
Tammy Abraham skoraði tvö
Tammy Abraham skoraði tvö
Mynd: Getty Images
Chelsea 3 - 0 West Ham
1-0 Thiago Silva ('10 )
2-0 Tammy Abraham ('78 )
3-0 Tammy Abraham ('80 )

Chelsea vann 3-0 sigur gegn West Ham í Lundúnaslag í kvöld. Leikurinn var lokaleikur umferðarinnar í ensku úrvalsdeildinni. Næsta umferð fer fram á öðrum degi jóla. Sigurinn er sá fyrsti hjá Chelsea gegn liði í efri hluta deildarinnar á leiktíðinni

Thiago Silva kom Chelsea yfir með sínu öðru deildarmarki á leiktíðinni, markið kom á 10. mínútu eftir hornspyrnu Mason Mount. Staðan var 1-0 í hálfleik en West Ham hafði komið boltanum í tvígang í netið, hvorugt markanna fékk að standa. Annað vegna rangstöðu og hitt vegna leikbrots.

Tammy Abraham kláraði leikinn fyrir Chelsea þegar vel var liðið á leikinn. Fyrra markið kom eftir undirbúning frá Timo Werner og það síðara eftir frákast.

Chelsea er með sigrinum komið upp í 5. sætið, liðið hafði tapað tveimur leikjum fyrir leikinn í kvöld. West Ham er í 10. sæti.

Sjá einnig:
Ekki hægt að skoða 'mark' Bowen með VAR - Féll Silva um sjálfan sig?

Athugasemdir
banner
banner
banner