Rashford yfirgefur Man Utd - Tottenham á eftir Alberti
   mán 21. desember 2020 14:00
Magnús Már Einarsson
Isco vill fara - Engin tilboð borist
Mynd: Getty Images
Isco, miðjumaður Real Madrid, vill yfirgefa herbúðir félagsins í félagaskiptaglugganum í janúar.

Hinn 28 ára gamli Isco er úti í kuldanum hjá Zinedine Zidane, þjálfara Real Madrid.

Engin tilboð hafa borist ennþá í Isco að sögn spænska íþróttablaðsins AS.

Arsenal, Sevilla, Juventus og AC Milan eru hins vegar öll sögð hafa augastað á leikmanninum.

Faðir Isco staðfesti í viðtali um helgina að leikmaðurinn hafi áhuga á að spreyta sig í deild utan Spánar.
Athugasemdir
banner
banner