Kovac orðaður við stjórastól Liverpool - Newcastle vill Gibbs-White - Dewsbury-Hall orðaður við Tottenham
   mán 21. desember 2020 16:00
Magnús Már Einarsson
Manchester City ætlar ekki að kaupa framherja í janúar
Pep Guardiola
Pep Guardiola
Mynd: Getty Images
Pep Guardiola, stjóri Manchester City, segir að félagið ætli ekki að kaupa framherja í janúar.

Sergio Aguero hefur lítið spilað á tímabilinu vegna meiðsla og Gabriel Jesus missti af 1-0 sigrinum á Southampton um helgina vegna meiðsla. Aguero var ónotaður varamaður í þeim leik.

„Nei ég held ekki," sagði Guardiola á fréttamannafundi í dag aðspurður hvort að hann stefni á að kaupa framherja.

„Það er út af efnahagsstöðunni í heiminum. Öll félög eru í vandræðum og við erum engin undantekning."
Athugasemdir
banner
banner