Amorim, Frank, Ten Hag, De Bruyne, Isak, Olise, Gyökeres og fleiri góðir í slúðurpakka dagsins
banner
   mán 21. desember 2020 20:26
Sæbjörn Þór Þórbergsson Steinke
Messi opnar sig: Ég átti mjög erfitt í sumar
Mynd: Getty Images
„Í hreinskilni þá er ég orðinn góður núna. Það er satt að ég átti mjög erfiða tíma í sumar. Það er vegna þess sem var að gerast fyrir sumarið, hvernig tímabilið endaði, fax-skilaboðin (e. burofax), og allt í kringum það," sagði Lionel Messi í viðtali sem La Sexta birti.

Það voru sögusagnir í sumar um að Messi gæti farið frítt frá Barcelona vegna ákvæðis í samningi sínum. Barcelona tókst þó að halda í Messi en hann viðurkennir að sér hafi ekki liðið vel með það sem væri í gangi.

„Ég kom ekki í nægilega góðum gír inn í tímabilið. Núna líður mé vel, vel stemmdur til að berjast fyrir öllu sem við eigum framundan. Ég er spenntur," bætti Messi við.

Barcelona hefur ekki farið vel af stað í deildinni heima fyrir. Liðið mætir Valladolid á morgun.
Athugasemdir
banner
banner
banner
banner
banner