Guimaraes, Silva, Van Persie, Yamal, Gil, Giroud og fleiri í slúðurpakkanum
   mán 21. desember 2020 14:25
Magnús Már Einarsson
Saint-Maximin og Lascelles ennþá frá vegna kórónuveirunnar
Allan Saint-Maximin fagnar marki.
Allan Saint-Maximin fagnar marki.
Mynd: Getty Images
Jamaal Lascelles, fyrirliði Newcastle, og kantmaðurinn knái Allan Saint-Maximin eru báðir ennþá frá keppni eftir að hafa fengið kórónuveiruna á dögunum.

Yfir 10 starfsmenn og leikmenn Newcastle smituðust af veirunni en æfingasvæði félagsins var lokað í kringum síðustu mánaðarmót.

Federico Fernandez og Isaac Hayden hafa báðir staðfest að þeir hafi fengið veiruna en leynd hefur hvílt yfir öðrum nöfnum.

Newcastle staðfesti hins vegar í dag að bæði Lascelles og Saint-Maximin hafi smitast og veikst illa.

Þeir hafa ekki ennþá snúið aftur til æfinga og munu ekki gera það fyrr en líðan þeirra verður betri.
Athugasemdir
banner
banner
banner
banner
banner