Musiala efstur á blaði Man City - Sóknarmenn orðaðir við Arsenal - Colwill orðaður við Liverpool og PSG
   mán 21. desember 2020 20:50
Sæbjörn Þór Þórbergsson Steinke
Silva skorað fleiri mörk með Chelsea en síðustu 3 tímabil með PSG
Mynd: Getty Images
Thiago Silva hefur skorað tvö mörk með Chelsea í tíu úrvalsdeildarleikjum en hann gekk í raðir félagsins frá PSG í sumar. Hann skoraði mark Chelsea í fyrri hálfleik gegn West Ham en staðan er 1-0 þegar nýbúið er að flauta til hálfleiks.

Markið í kvöld kom eftir hornspyrnu Mason Mount snemma leiks. Fyrra mark Silva kom gegn Sheffield United í 8. umferð deildarinnar.

Saman hafa Silva og Kurt Zouma, miðvarðapar Chelsea, skorað sex mörk í deildinni á leiktíðinni.

Silva er ekki þekktur markaskorari en hann skoraði einungis eitt mark á síðustu þremur leiktíðum í frönsku deildinni. Það mark kom leiktíðina 2017/18.
Athugasemdir
banner
banner
banner