Musiala efstur á blaði Man City - Sóknarmenn orðaðir við Arsenal - Colwill orðaður við Liverpool og PSG
   mán 21. desember 2020 15:00
Magnús Már Einarsson
Thuram biðst afsökunar á að hafa hrækt á andstæðing
Mynd: Getty Images
Marcus Thuram, framherji Gladbach, hefur beðist afsökunar á að hafa hrækt á Stefan Posch, varnarmann Hoffenheim, í leik liðanna um helgina.

„Það gerðist eitthvað sem er ekki líkt karakter mínum og á ekki að gerast. Ég brást við á rangan hátt í samskiptum við mótherja og eitthvað gerðist fyrri slysni en ekki viljandi," sagði Thuram á Twitter eftir leik.

„Ég bið alla afsökunar. Stefan Posch, andstæðinga mína, liðsfélaga, fjölskyldu og alla sem sáu þetta."

„Ég mun auðvitað taka afleiðingum gjörða minna,"
sagði Thuram en hann er á leið í langt bann.

Hér má sjá atvikið sjálft.


Athugasemdir
banner
banner
banner