Amorim, Frank, Ten Hag, De Bruyne, Isak, Olise, Gyökeres og fleiri góðir í slúðurpakka dagsins
   mið 21. desember 2022 07:00
Brynjar Ingi Erluson
Einn besti leikmaður Arsenal að framlengja - Launin þrefaldast
Gabriel Martinelli
Gabriel Martinelli
Mynd: EPA
Brasilíski vængmaðurinn Gabriel Martinelli mun á næstu vikum skrifa undir nýjan langtímasamning við félagið. Þetta kemur fram í enska blaðinu Daily Mail.

Martinelli hefur verið einn af máttarstólpum Arsenal sem er í toppsæti ensku úrvalsdeildarinnar.

Þessi 21 árs gamli leikmaður hefur tekið miklum framförum síðasta eina og hálfa árið.

Arsenal er nú reiðubúið að verðlauna leikmanninn en félagið er í viðræðum við teymi hans um að framlengja samninginn til næstu ára og mun hann þrefalda í launum samkvæmt Daily Mail.

Martinelli þénar 70 þúsund pund á viku en hann verður með launahæstu leikmönnum liðsins og mun nýi samningurinn færa honum 200 þúsund pund í vikulaun.

Brasilíumaðurinn, sem er með fimm mörk í fjórtán leikjum í deildinni, mun skrifa undir samninginn á næstu vikum.
Athugasemdir
banner
banner
banner
banner