mið 21. desember 2022 06:00
Auglýsingar
Fótboltaskóli FC Barcelona á Íslandi næsta sumar
7 sumarið sem skólinn er starfræktur
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Þau gleðitíðindi voru að berast að FC Barcelona academían sé væntanleg aftur til Íslands í sumar með æfingabúðir í samvinnu við Knattspyrnuakademíu Íslands.


Æfingabúðirnar eru fyrir börn á aldrinum 9 -14 ára ( 4. 5. og 6. flokkur ) og verða á æfingasvæðinu við Kópavogsvöll 21. – 25. júní , bæði fyrir stelpur og stráka, sem þó munu æfa í sitthvoru lagi. Æfingabúðunum lýkur með skemmtilegu lokahófi á sunnudeginum.

Það er ekki sjálfgefið að Barça academían komi til landa eins og Íslands. Mikil eftirspurn er eftir Barça academíunni sem sendir eingöngu þjálfara í æfingabúðirnar sem þjálfa í hinni frægu FC Barcelona academíu. Sjúkraþjálfari er á öllum æfingum ef óhöpp verða og er það hluti af þeim fjölmörgu gæða stöðlum sem FC Barcelona setur í æfingabúðum eins og þessum.

Æfingabúðirnar hafa verið gífurlega vinsælar og reiknað er með að færri komist að en vilja líkt og síðustu ár, þess vegna eru forráðamenn hvattir til að skrá börnin sín sem fyrst. Hægt er að finna frekari upplýsingar um æfingabúðirnar og skráningu á www.knattspyrnuakademian.is


Athugasemdir
banner
banner
banner
banner