þri 22. janúar 2019 14:00
Magnús Már Einarsson
Christensen fór af bekknum - Sarri brjálaður
Mynd: Getty Images
Maurizio Sarri, stjóri Chelsea, er allt annað en ánægður með Andreas Christensen varnarmann liðsins eftir 2-0 tapið gegn Arsenal um helgina.

Christensen kom ekkert við sögu í leiknum en hann náði þó að gera Sarri reiðan.

Þegar Chelsea hafði notað allar skiptingar sínar, þegar tíu mínútur voru eftir af leiknum, sagði Daninn við liðsfélaga sína að hann ætlaði inn í búningsklefa á klósettið.

Hinn 22 ára gamli Christensen mætti hins vegar ekki aftur á bekkinn og það er eitthvað sem Sarri er mjög ósáttur við.

Christensen spilaði mikið með Chelsea á síðasta tímabili en undir stjórn Sarri hefur hann einungis leikið einn leik í ensku úrvalsdeildinni.
Athugasemdir
banner
banner
banner