þri 22. janúar 2019 05:55
Ívan Guðjón Baldursson
Ísland í dag - Stjarnan mætir Keflvíkingum
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Það eru tveir leikir á dagskrá hér á landi í kvöld þar sem Stjarnan á leik við Keflavík á sama tíma og Augnablik mætir ÍA.

Stjarnan og Keflavík mætast í annari umferð Fótbolta.net mótsins í Kórnum.

Stjarnan gerði jafntefli við FH í fyrstu umferð á meðan Keflavík steinlá gegn ÍA.

Augnablik og ÍA eigast þá við í toppslag í Faxaflóamótinu eftir auðvelda sigra gegn Álftanesi og FH í fyrstu umferð.

Fótbolta.net mótið - A deild, riðill 1:
21:10 Stjarnan - Keflavík (Kórinn)

Faxaflóamótið - B riðill:
21:15 Augnablik - ÍA (Fífan)
Athugasemdir
banner
banner
banner