Musiala efstur á blaði Man City - Sóknarmenn orðaðir við Arsenal - Colwill orðaður við Liverpool og PSG
   þri 22. janúar 2019 14:30
Magnús Már Einarsson
Ronaldo tapaði veðmáli gegn Allegri
Ronaldo og Allegri.
Ronaldo og Allegri.
Mynd: Getty Images
Cristiano Ronaldo klikkaði á vítapunktinum þegar Juventus vann Chievo örugglega 3-0 í gærkvöldi en Stefano Sorrentino varði spyrnu Portúgalans.

Ronaldo tapaði um leið veðmáli við Massimiliano Allegri, þjálfara Juventus en hann hafði veðjað á að hann myndi ekki klikka á víti á tímabilinu.

„Það er satt að ég var með veðmál við þjálfarann um að ég myndi skora úr öllum vítaspyrnum á tímabilinu," sagði Ronaldo við fjölmiðla eftir leik.

Ronaldo hefur skorað 16 mörk með Juventus á tímabilinu en fimm af þeim hafa komið úr vítaspyrnum.

Á ferli sínum hefur Ronaldo skorað 108 mörk úr vítaspyrnum en klikkað á 22 spyrnum.
Athugasemdir
banner
banner