Bjarki Már Sigvaldason er með áritaða HK treyju á lottó uppboði til styrktar Styrktarfélags Bjarka Más Sigvaldasonar. Kostar aðeins 1000kr miðinn og getur þú nælt þér í hann á CharityShirts.is.
Vinningshafi verður dreginn út þriðjudaginn 28 janúar kl 19:00! Allur ágóði rennur til Styrktarfélag Bjarka Más Sigvaldasonar.
Bjarki Már er fyrrum leikmaður og spilaði með HK og Ými samtals 87 leiki og skoraði 9 mörk í þeim ásamt því að eiga 7 yngri landsliðsleiki með U-17.
Bjarki hefur unnið hug og hjörtu Íslendinga með einlægni sinni og hetjulegri baráttu gegn illvígu krabbameini sem lítið verður ráðið við.
Sjá einnig:
Arsenalklúbburinn býður Bjarka á leik - „Draumur að rætast"
Nú þegar hafa farið fram 11 aðrar treyjur á lottó og hafa samtals 750.000 kr safnast til góðgerðarmála.
Athugasemdir