Barcelona vill Díaz frá Liverpool - Úlfarnir skoða markverði - City til í að hlusta á tilboð í Grealish
   lau 22. janúar 2022 23:30
Ívan Guðjón Baldursson
Sjáðu stoðsendingar Danijels og Elíasar
Mynd: Fótbolti.net - Hulda Margrét
Danijel Dejan Djuric og Elías Rafn Ólafsson voru í liði Midtjylland sem rúllaði yfir Esbjerg í æfingaleik í gær, 5-1.

Þeir áttu sitthvora stoðsendinguna í leiknum og er hægt að sjá þær í myndbandinu hér fyrir neðan.

Danijel lagði annað mark leiksins upp á níundu mínútu. Hann vann boltann ofarlega á vellinum og sendi hann í gegn á Mads Hansen sem skoraði.

Elías Rafn markvörður lagði þriðja mark leiksins upp fyrir Awer Mabil með langri sendingu upp völlinn. Það kom eftir 30 mínútur af leiknum.

Bæði Danijel og Elías voru teknir af velli í hálfleik. Í liði Esbjerg var Ísak Óli Ólafsson í byrjunarliðinu en fór af velli á 30. mínútu vegna meiðsla. Þess má geta að þeir Danijel og Elías eru uppaldir í Breiðabliki og Ísak Óli er Keflvíkingur.


Athugasemdir
banner
banner
banner
banner