Guimaraes, Isak, Kimmich, Diaz, Branthwaite, Mainoo og fleiri góðir í slúðri dagsins
   lau 22. febrúar 2020 17:27
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson
Arnór Sig skoraði þrennu í æfingaleik á Spáni
Arnór í landsleik.
Arnór í landsleik.
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Arnór Sigurðsson skoraði öll þrjú mörk CSKA Moskvu er liðið vann 3-0 sigur á Ufa í æfingaleik á Spáni í dag.

Rússneska úrvalsdeildin hefst aftur um næstu helgi eftir vetrarfrí. CSKA og Ufa eru í æfingaferð á Spáni til að undirbúa sig fyrir seinni hluta tímabilsins. CSKA er í fjórða sæti rússnesku úrvalsdeildarinnar og Ufa í sjöunda sætinu.

Arnór og Hörður Björgvin Magnússon voru báðir í byrjunarliðinu í dag, en sá fyrrnefndi átti frábæran seinni hálfleik þar sem hann skoraði þrennu.

Arnór er aðeins tvítugur og gríðarlega spennandi leikmaður. Hann á að baki átta A-landsleiki fyrir Ísland og eitt landsliðsmark.
Athugasemdir
banner
banner
banner
banner