Barcelona og Man City vilja Olmo - Liverpool gæti reynt við Kudus - Chelsea og Barcelona hafa áhuga á Dybala
   mán 22. apríl 2019 23:27
Brynjar Ingi Erluson
Sterling borgar útfararkostnað fyrir ungan dreng
Raheem Sterling minnist Damary Dawkins
Raheem Sterling minnist Damary Dawkins
Mynd: Getty Images
Enski landsliðsmaðurinn Raheem Sterling ætlar að greiða útfararkostnað fyrir fjölskyldu Daramy Dawkins en hann lést á dögunum eftir baráttu við hvíblæði.

Sterling, sem er 25 ára gamall, hefur verið einn besti leikmaður Manchester City á þessari leiktíð og virðist bæta sig með hverju árinu en hann hefur einnig komist í fréttirnar fyrir frábæran karakter sinn.

Damary Dawkins, 13 ára stuðningsmaður Sterling, lést í síðasta mánuði eftir baráttu við hvítblæði en Sterling hafði hjálpað honum í baráttunni.

Sterling heiðraði minningu hans í 5-0 sigri Englands á Tékklandi í síðasta mánuði þar sem hann klæddist bol sem var merktur Dawkins.

Enski vængmaðurinn ætlar að greiða allan útfararkostnað fyrir fjölskyldu Dawkins en útförin fer fram á föstudag.
Athugasemdir
banner
banner
banner