Hver tekur við af Klopp? - Dani Olmo orðaður við Man Utd - Greenwood í skiptum fyrir Gleison Bremer
   mið 22. apríl 2020 06:00
Sæbjörn Þór Þórbergsson Steinke
Enn hleypur Halli apríl - Innan við fjórðungur eftir
Mynd: Páll Jóhannesson
Mynd: Skapti Hallgrímsson
Mynd: Páll Jóhannesson
Haraldur Ingólfsson, Þórsari, setti sér það verkefni að hlaupa einn kílómetra fyrir hvert sokkapar sem leikmenn kvennaliðanna á Akureyri, Þór/KA og Hamrarnir, voru með til sölu í febrúar og mars í fjáröflunarskyni.

Alls seldust 310 pör á þessum mánuðum og því voru það 310 kílómetrar til stefnu.

Sjá einnig:
Halli hleypur apríl - Hleypur fyrir kvennaliðin á Akureyri

Halli hefur gert gífurlega vel og á innan við fjórðung eftir af þessum 310 kílómetrum og má lesa um stöðuna hér að neðan. Þar koma fram leiðir til að styrkja málefnið og hvernig Halli setti upp þetta verkefni.

Enn hleypur Halli Apríl - Innan við fjórðungur eftir
Verkefnið „Halli hleypur apríl“ hefur gengið vonum framar og er nú innan við fjórðungur eftir. Aðalmarkmið verkefnisins er að safna áheitum og framlögum til að styrkja Þór/KA og Hamrana, knattspyrnulið kvenna á Akureyri. Verkefnið felst í því að Haraldur Ingólfsson ætlar að hlaupa 310 kílómetra í apríl, en sú vegalengd kemur til af því að stelpurnar í liðunum seldu 310 pör af sokkum í febrúar og mars.

Aðalatriðið er að fá stuðningsfólk og velunnara, jafnt á Akureyri sem annars staðar, til að taka höndum saman og styrkja kvennaliðin í því erfiða ástandi sem nú ríkir og líkur eru á að muni vara um nokkra hríð. Hlaupin og athyglin á þann sem hleypur eru aukaatriði til að vekja athygli á liðunum og þörfinni fyrir öflugan stuðning og sterka bakhjarla á þessum tímum.

Einum og hálfum degi á undan áætlun
Hlaupaáætlunin gerði ráð fyrir 12 kílómetrum að meðaltali á dag í sex daga og síðan einn dag í frí. Haraldur hefur gert gott betur og er nú kominn nánast einn og hálfan dag fram úr áætlun. Hann á nú um 77 kílómetra eftir af þeim 310 sem markmiðið var að hlaupa, en þróunina í hlaupunum má sjá á meðfylgjandi mynd (tekin af dagbókarsíðu hlaupsins). Haraldur hefur tekið sér frí á þriðjudögum eftir að hafa hlaupið næstu sex daga á undan, þannig að hann hleypur ekki í dag. Eftir hlaupin í gær á hann innan við fjórðung vegalengdarinnar eftir.

Haraldur setur daglega inn myndir, myndbönd og upplýsingar á Facebook-síðu verkefnisins, „Hlauptu, Halli, hlauptu“, á dagbókarsíðuna haralduringolfsson.wordpress.com og á sína eigin Instagram-síðu, @halli_ingolfs.

Ætlunin er að klára 310 kílómetrana í hádeginu fimmtudaginn 30. apríl. Mögulega verður eitthvað smá tilstandi, en þó auðvitað innan marka og reglna samkomubannsins.

Margar leiðir til að styrkja
Mögulegt er að styrkja liðin í gegnum þetta verkefni með ýmsum hætti og má til dæmis sjá upplýsingar og reikningsnúmer á dagbókarsíðu hlaupsins -
https://haralduringolfsson.wordpress.com/styrkja-verkefnid-halli-hleypur-april/.

Meðal annars er hægt að leggja beint inn á reikning hjá Haraldi, 0566-26-2777, kr. 2806632639, eða inn á reikning Styrktarfélags Þórs/KA, 0566-26-6004, kt. 6409091020. Einnig má skrá áheit á sérstakri síðu og fá reikning í heimabanka eða greiða með kreditkorti í gegnum sérstaka söfnunarsíðu, sportfunder.com/haralduringolfsson.

Unnið er að því að útbúa bol með áletruninni „Ég hleyp fyrir stelpur“ og „310 KM“ á bakinu. Tilvitnunin er innblásin af frétt á mbl.is þegar verkefnið hófst, en þá birtist frétt undir fyrirsögninni: „Hleypur fyrir stelpur á Akureyri“. Bolirnir verða seldir til styrktar verkefninu.

Nánari upplýsingar veittar í síma 824 2778 og [email protected].
Athugasemdir
banner
banner
banner
banner