Barcelona og Man City vilja Olmo - Liverpool gæti reynt við Kudus - Chelsea og Barcelona hafa áhuga á Dybala
   mið 22. apríl 2020 07:30
Sæbjörn Þór Þórbergsson Steinke
Football Italia skýtur á Gattuso: Bætt vel á sig
Mynd: Getty Images
Gennaro Gattuso var á upptöku í gær þar sem hann ráðlagði fólki að hugsa um heilsuna og vera heimavið vegna kórónaveirunnar.

Ítalski fjölmiðillinn Football Italia skýtur, í umfjöllun sinni um þetta innslag Gattuso, á þjálfarann og spyr þeirra spurningu hvort Gattuso sé sjálfur að fylgja skilaboðunum.

F I segir í frétt sinni að svo virðist sem Gattuso hafi safnað nokkrum aukakílóum frá því hann sást síðast fyrir mánuði síðan. Innslagið má sjá hér að neðan.


Athugasemdir
banner