Það koma fjölmargir spennandi leikmenn upp úr unglingastarfi Real Madrid.
Spænskir fjölmiðlar segja að mikill fjöldi félaga hafi áhuga áhuga á framherjanum Dani Gomez.
Þessi 21 árs leikmaður hefur vakið mikla athygli fyrir öfluga frammistöðu með Tenerife í B-deildinni á þessu tímabili og hefur skorað 18% af mörkum liðsins.

AS segir að gríðarlegur áhugi sé á leikmanninum, meðal annars frá Þýskalandi, Ítalíu, Hollandi og Portúgal. Auk þess sem önnur félög í La Liga vilji fá hann.
Tenerife vill halda honum en það verður nær ómögulegt fyrir félagið. Talið er að Real Madrid sé ekki tilbúið að selja hann á þessum tímapunkti en sé opið fyrir lánssamningi.
Athugasemdir