Barcelona og Man City vilja Olmo - Liverpool gæti reynt við Kudus - Chelsea og Barcelona hafa áhuga á Dybala
   fim 22. apríl 2021 22:15
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson
Nýr búningur KR frumsýndur
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
KR hefur frumsýnt nýjan keppnisbúning sinn fyrir tímabilið sem framundan er.

Karlalið KR hafnaði í fimmta sæti Pepsi Max-deildarinnar á síðustu leiktíð á meðan kvennaliðið féll úr efstu deild. Það er gerð krafa á betri árangur í sumar í Vesturbænum.

KR kynnti nýjan búning sinn með myndum á samfélagsmiðlum í dag en það er ekkert óhefðbundið við þennan búning.

Karlalið KR hefur leik á útivelli í Pepsi Max-deildinni þann 2. maí gegn Breiðablik á útivelli. Kvennalið KR-inga hefur leik í Lengjudeildinni gegn Augnablik 6. maí.

Hægt er að sjá myndir af búningnum hér að neðan.


Athugasemdir
banner
banner
banner