Musiala efstur á blaði Man City - Sóknarmenn orðaðir við Arsenal - Colwill orðaður við Liverpool og PSG
   mið 22. maí 2019 06:00
Brynjar Ingi Erluson
Burnley vill Jonjoe Kenny frá Everton
Jonjoe Kenny gæti verið á förum frá Everton
Jonjoe Kenny gæti verið á förum frá Everton
Mynd: Getty Images
Jonjoe Kenny, varnarmaður Everton á Englandi, gæti verið á förum frá félaginu í sumar. Þetta kemur fram í Daily Mail.

Kenny er 22 ára gamall hægri bakvörður og er uppalinn hjá Everton en hann fékk þó aðeins tíu leiki í ensku úrvalsdeildinni á tímabilinu.

Sean Dyche, knattspyrnustjóri Burnley, bauð í leikmanninn í janúar en þá hafnaði Everton boðinu.

Hann mun reyna aftur við hann í sumar og telur líkurnar betri en í janúar en Everton mun reyna að styrkja hægri bakvarðarstöðuna í sumar.

Crystal Palace hefur einnig sýnt Kenny áhuga en ljóst er að hann þarf að spila meira og verða tækifærin af skornum skammti ef hann ákveður að vera áfram hjá Everton.
Athugasemdir
banner
banner
banner