Rashford yfirgefur Man Utd - Tottenham á eftir Alberti
   lau 22. maí 2021 18:33
Aksentije Milisic
2 deild: KF á toppnum með fullt hús stiga
Mynd: Fótbolti.net - Sævar Geir Sigurjónsson
KF 1-0 Leiknir F
1-0 Sachem Wilson (‘90+4)

Lokaleikurinn í þriðju umferð 2. deildarinnar fór fram í dag en þar áttust við KF og Leiknir F.

KF hafði unnið fyrstu tvo leiki sína í deildinni á meðan gestirnir voru án stiga.

KF byrjaði leikinn mikið betur og var betra liðið fyrsta klukkutímann eða svo. Gestirnir tóku hins vegar við sér og sóttu mikið meira síðari hluta leiks.

Sigurinn gat dottið báðu meginn en allt stefndi í að 0-0 yrðu lokaúrslit leiksins. Hinn öflugi Sachem Wilson var hins vegar á öðru máli og skoraði hann eina mark leiksins sem var jafnframt síðasta spyrna leiksins. Markið kom á 94. mínútu.

Vel var mætt á leikinn og fögnuðu heimamenn skiljanlega mikið í leikslok. KF er á toppi deildarinnar eftir þrjár umferðir með fullt hús stiga á meðan Leiknir er enn án stiga eftir fyrstu þrjár umferðirnar.
Athugasemdir
banner
banner