Amorim, Frank, Ten Hag, De Bruyne, Isak, Olise, Gyökeres og fleiri góðir í slúðurpakka dagsins
   lau 22. maí 2021 22:00
Victor Pálsson
Arteta: Willock kemur aftur til okkar
Mynd: EPA
Joe Willock verður leikmaður Arsenal á næstu leiktíð að sögn Mikel Arteta, stjóra liðsins.

Willock hefur staðið sig virkilega vel með Newcastle á þessu tímabili en hann var lánaður til félagsins frá Arsenal í janúar.

Newcastle vill halda leikmanninum á næstu leiktíð en líkurnar eru ekki miklar miðað við orð Arteta í gær.

„Hann er með samning og sá samningur verður hérna. Það er á hreinu," sagði Arteta við blaðamenn.

„Ég er hæstánægður með hvernig hlutirnir hafa gengið því hann er með mikla hæfileika. Það var gott fyrir hann að komast burt og öðlast reynslu annars staðar."

„Hann tók þessu tækifæri á mjög jákvæðan hátt og hann kemur aftur til okkar. Við munum undirbúa næstu ár fyrir hann."
Athugasemdir
banner
banner
banner
banner