Guimaraes, Silva, Van Persie, Yamal, Gil, Giroud og fleiri í slúðurpakkanum
   lau 22. maí 2021 15:05
Stefán Marteinn Ólafsson
Byrjunarlið FH og KR: Kjartan Henry og Finnur Tómas koma inn
FH gerir eina breytingu
Kjartan Henry Finnbogason er mættur aftur í treyju KR.
Kjartan Henry Finnbogason er mættur aftur í treyju KR.
Mynd: Fótbolti.net - Eyjólfur Garðarsson
Klukkan 16:00 í dag flautar Ívar Orri Kristjánsson til leiks í Kaplakrika þegar FH taka á móti KR í lokaleik 5.umferðar Pepsi Max deildar karla.

Um sannkallaðan stórleik er að ræða og rimmur þessara liða hafa oftar en ekki boðið upp á mikla skemmtun. FH berjast um að halda sér í baráttunni um efstu sætin á meðan KR reynir að dragast ekki of mikið aftur úr.

FH gerir eina breytingu á sínu liði frá síðasta leik gegn HK í Kórnum en Pétur Viðarsson kemur inn fyriri Hjört Loga Valgarðsson.
Hjá KR eru þrjár breytingar en Kjartan Henry Finnbogason, Kristján Flóki Finnbogason og Finnur Tómas Pálmarsson koma inn fyrir Arnór Svein Aðalsteinsson, Arnþór Inga Kristinsson og Guðjón Baldvinsson frá síðasta leik gegn Val.

Byjunarliðin má sjá hér fyrir neðan.

Byrjunarlið FH:
1. Gunnar Nielsen (m)
2. Hörður Ingi Gunnarsson
5. Hjörtur Logi Valgarðsson
6. Eggert Gunnþór Jónsson
7. Steven Lennon
8. Þórir Jóhann Helgason
9. Matthías Vilhjálmsson (f)
11. Jónatan Ingi Jónsson
16. Guðmundur Kristjánsson
21. Guðmann Þórisson
23. Ágúst Eðvald Hlynsson

Byrjunarlið KR:
1. Beitir Ólafsson (m)
4. Arnþór Ingi Kristinsson
5. Arnór Sveinn Aðalsteinsson
6. Grétar Snær Gunnarsson
7. Guðjón Baldvinsson
10. Pálmi Rafn Pálmason
11. Kennie Chopart
14. Ægir Jarl Jónasson
19. Kristinn Jónsson
22. Óskar Örn Hauksson (f)
23. Atli Sigurjónsson

Stöðutaflan
  L U J T ms: mf: mun Stig
0 0 0 0 0 0 0 0 0
Athugasemdir
banner
banner
banner