Amorim, Frank, Ten Hag, De Bruyne, Isak, Olise, Gyökeres og fleiri góðir í slúðurpakka dagsins
banner
   lau 22. maí 2021 13:34
Jóhann Þór Hólmgrímsson
Championship: Brentford í úrslit um sæti í úrvalsdeildinni
Ivan Toney verið iðinn við kolann hjá Brentford í vetur
Ivan Toney verið iðinn við kolann hjá Brentford í vetur
Mynd: Getty Images
Brentford 3 - 1 Bournemouth
0-1 Arnaut Danjuma ('6 )
1-1 Ivan Toney ('16 , víti)
2-1 Vitaly Janelt ('50 )
3-1 Marcus Forss ('81 )
Rautt spjald: Chris Mepham, Bournemouth ('28)

Brentford er komið í úrslitaleikinn í umspili Championship deildarinnar um sæti í úrvalsdeildinni á næstu leiktíð eftir 3-1 sigur á Bournemouth í dag. Fyrri leikur liðanna endaði með 1-0 sigri Bournemouth.

Arnaut Danjuma kom gestunum yfir strax á sjöttu mínútu en markahrókurinn Ivan Toney jafnaði metin fyrir Brentford úr vítaspyrnu tíu mínútum síðar.

Þegar um hálftími var liðinn af leiknum lét Chris Mepham varnarmaður Bournemouth reka sig útaf. Fleiri urðu mörkin ekki í fyrri hálfleik. Á 50. mínútu skoraði Vitaly Janelt annað mark Brentford og þegar um tíu mínútur voru eftir tryggði Marcus Forss Brentford sigurinn.

Brentford mætir annað hvort Swansea eða Barnsley í úrslitum en þau spila sín á milli seinna í dag.
Athugasemdir
banner