Swansea 1 - 1 Barnsley (2-1 samanlagt)
1-0 Matt Grimes('39)
1-1 Cauley Woodrow('71)
1-0 Matt Grimes('39)
1-1 Cauley Woodrow('71)
Það eru Brentford og Swansea sem munu spila úrslitaleik um laust sæti í ensku úrvalsdeildinni á næstu leiktíð.
Þetta varð ljóst í kvöld en leik Swansea og Barnsley var að ljúka í undanúrslitum.
Fyrr í dag vann Brentford lið Bournemouth 3-1 og 3-2 samanlagt og fer í úrslitaleikinn.
Leik Swansea og Barnsley lauk með 1-1 jafntefli en Swansea vann fyrri leikinn 1-0 og fer áfram samanlagt, 2-1.
Úrslitaleikurinn fer fram þann 29. maí næstkomandi á Wembley.
Athugasemdir