Það er draumur Harry Kane að spila einn daginn með Kevin de Bruyne en þetta sagði hann á YouTube rásinni On the Overlap.
Kane er líklegast á förum frá Tottenham í sumar og er þá sterklega orðaður við Manchester City þar sem De Bruyne spilar.
Kane var beðinn um að nefna drauma samherjann og var ekki lengi að nefna Belgann magnaða á nafn.
„Oh, Kevin De Bruyne klárlega," sagði Kane en hann ræddi þar við Gary Neville, fyrrum leikmann Manchester United.
„Hann er einstakur leikmaður og sumar sendingarnar hans eru draumi líkast fyrir framherja. Hann er magnaður leikmaður."
„Þið hafið séð hann, hann er frábær með boltann, án hans, í pressunni og hans sendingar eru þær bestu sem ég hef séð."
Athugasemdir