lau 22. maí 2021 06:00
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson
Hvaða lið fara á Wembley?
Swansea er í góðum málum.
Swansea er í góðum málum.
Mynd: Getty Images
Það er spennandi dagur framundan á Englandi þar sem umspilið í Championship-deildinni heldur áfram.

Liðin fjögur mætast í seinni leikjum í undanúrslitum umspilsins. Það er sæti í úrslitaleik á Wembley í boði og í dag ræðst það hvaða lið mætast í úrslitaleiknum sjálfum.

Brentford tekur á móti Bournemouth klukkan 11:30. Staðan í einvíginu er 1-0 fyrir Bournemouth.

Svo mætast Swansea og Barnsley klukkan 17:30 en staðan þar er 1-0 fyrir Swansea sem er á heimavelli í kvöld. Sigurliðin í einvígunum mætast svo í úrslitaleik í næstu viku þar sem það ræðst hvaða lið fer upp í úrvalsdeild með Norwich og Watford.

laugardagur 22. maí

ENGLAND: Championship, Playoffs
11:30 Brentford - Bournemouth
17:30 Swansea - Barnsley

Sjá einnig:
'Moneyball' í enska boltanum
Athugasemdir
banner
banner
banner
banner
banner