Musiala efstur á blaði Man City - Sóknarmenn orðaðir við Arsenal - Colwill orðaður við Liverpool og PSG
   lau 22. maí 2021 12:54
Jóhann Þór Hólmgrímsson
Ítalía: Napoli hélt sæti sínu í deildinni - Lára og Guðný ekki með
Mynd: Napoli
Lokaumferð Ítölsku úrvalsdeildar kvenna fer fram um helgina. Tveimur leikjum er þegar lokið en Napoli, lið Guðnýjar Árnadóttur og Láru Kristínar Pedersen gerði 2-2 jafntefli gegn Roma.

Þær voru hvorugar með liðinu í dag en Guðný hefur verið í lykilhlutverki í vörninni síðan hún gekk til liðs við Napoli í desember en hún er á láni frá AC Milan. Hún þurfti að fara af velli vegna meiðsla í síðustu umferð.

Napoli var í baráttu við San Marino um að halda sæti sínu í deildinni en með jafntefli Napoli þurftu þær að treysta á að San Marino misstígi sig gegn Fiorentina sem og þær gerðu. Lokatölur þar 2-1 fyrir Fiorentina.

Napoli endaði í þriðja neðsta sæti með fjórtán stig, tveimur stigum meira en San Marino.
Athugasemdir
banner
banner