Haukar 0 - 2 Víkingur R.
0-1 Nadía Atladóttir ('8 )
0-2 Kristín Erna Sigurlásdóttir ('13 )
Lestu um leikinn
0-1 Nadía Atladóttir ('8 )
0-2 Kristín Erna Sigurlásdóttir ('13 )
Lestu um leikinn
Víkingur vann 0-2 útisigur gegn Haukum í Lengjudeild kvenna í dag.
Nadía Atladóttir kom Víkingi yfir á 8. mínútu, gegn gangi leiksins. Markið skoraði hún eftir sendingu frá Kristínu Ernu. Nadía endurgalt greiðann skömmu síðar.
„2-0!! Jahérna, Víkingskonur fljótar að bæta forskotið. Nadía fær sendingu upp kantinn og keyrir í átt að markinu og finnur Kristínu Ernu sem er í betra færi og setur hann örugglega inn," skrifaði Alexandra Bía Sumarliðadóttir í textalýsingunni frá leiknum.
Nokkuð var um færi í leiknum en mörkin urðu ekki fleiri. Bæði lið eru nú með fjögur stig eftir þrjár umferðir.
Athugasemdir