Valerenga byrjaði titilvörnina í norsku úrvalsdeildinni á öruggum sigri gegn Avaldsnes.
Ingibjörg Sigurðardóttir og Amanda Andradóttir voru báðar í byrjunarliði Valerenga í dag.
Ingibjörg var áberandi í leiknum. Valerenga komst yfir en Avaldsnes jafnaði metin, Ingibjörg var fyrir því óláni að skora sjálfsmark. Ingibjörg lagði síðan upp þriðja mark liðsins.
Leiknum lauk með 5-3 sigri Valerenga. Ingibjörg lék allan leikinn en Amanda var skipt útaf á 57. mínútu.
Athugasemdir