Musiala efstur á blaði Man City - Sóknarmenn orðaðir við Arsenal - Colwill orðaður við Liverpool og PSG
   lau 22. maí 2021 06:00
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson
Skrifaði undir hjá Sheffield United þrátt fyrir áhuga frá stórum félögum
Fagnar marki sínu gegn Everton.
Fagnar marki sínu gegn Everton.
Mynd: EPA
Sóknarmaðurinn Daniel Jebbison hefur skrifað undir samning við Sheffield United, sinn fyrsta atvinnumannasamning við félagið.

Jebbison er aðeins 17 ára en hann skoraði sitt fyrsta mark í ensku úrvalsdeildinni á dögunum þegar Sheffield United vann óvæntan útisigur á Everton.

Hann hefur vakið áhuga hjá stærstu félögum Evrópu, félögum eins og Manchester United, Bayern München og Borussia Dortmund. Arsenal, Tottenham og Chelsea í þeirri umræðu.

Þrátt fyrir áhuga annars staðar frá, þá ætlar hann að vera áfram hjá Sheffield United og þróa leik sinn þar.

Sheffield United spilar í Championship-deildinni á næstu leiktíð og þar gæti Jebbison fengið fullt af tækifærum.
Athugasemdir
banner
banner
banner