Arsenal endurnýjar áhuga á Luiz - Man Utd reynir við Todibo - Tottenham vill Sudakov
   lau 22. maí 2021 20:56
Victor Pálsson
Suarez talar um erfiða upplifun hjá Barcelona - „Ég var vanmetinn"
Mynd: EPA
Luis Suarez, leikmaður Atletico Madrid, reyndist hetja liðsins í dag gegn Real Valladolid í spænsku deildinni.

Suarez skoraði 21 mark fyrir Atletico á þessu tímabili en liðið tryggði sér tit ilinn með sigrinum í dag.

Barcelona ákvað að losa sig við Suarez síðasta sumar en Úrúgvæinn vildi sjálfur ekki fara en fékk engu ráðið um það.

Suarez felldi tár í leikslok í dag og sagði Barcelona hafa vanmetið hæfileika hans fyrir ári síðan.

„Upplifunin síðasta sumar var mjög erfið, hvernig ég var vanmetinn," sagði Suarez við Movistar eftir leikinn.

„Atletico Madrid opnaði dyrnar fyrir mig til að sýna hvaða leikmann ég hef að geyma."

Þess má geta að Barcelona hafnaði í þriðja sæti deildarinnar.
Athugasemdir
banner
banner
banner