Þórhanna Inga Ómarsdóttir fyrirliði Víkings, var sátt með fyrsta sigur sumarsins sem kom gegn Haukum í dag.
"Við spiluðum vel, héldum okkar fókus og pressuðum vel á þær og náðum að fylgja eftir því sem við lögðum upp með í leiknum."
Haukar byrjuðu af meiri krafti og voru meira með boltann en Víkingar fengu góðar skyndisóknir sem þær nýttu vel.
"Þetta er akkúrat sem við lögðum upp með, kannski bara að finna aðeins út hvernig þær spiluðu og svo bara nýta okkar hraða upp á við. Svo þegar það færðist aðeins ró í leikinn þá fannst mér við koma mjög vel inn í spilið."

Lestu um leikinn: Haukar 0 - 2 Víkingur R.
Næsti leikur Víkings er gegn Gróttu. Sá leikur leggst mjög vel í Þórhönnu.
"Við erum búnar að vera að byggja mjög vel upp á það sem við höfum verið að gera liðið, og mér fannst það takast vel í dag. Ég held að við bara höldum áfram svona í næsta leik," sagði Þórhanna að lokum.
Athugasemdir