Barcelona og Man City vilja Olmo - Liverpool gæti reynt við Kudus - Chelsea og Barcelona hafa áhuga á Dybala
   lau 22. maí 2021 23:30
Victor Pálsson
Zaha vill fá annað tækifæri í stærra liði
Mynd: Getty Images
Wilfried Zaha mun ekki hika við það að ganga í raðir stærra liðs í sumar ef tækifærið gefst í glugganum.

Zaha er besti leikmaður Crystal Palace en hann vill yfirgefa félagið og fá séns hjá stærra félagi sem getur barist um titla.

Zaha hefur áður spilað sem táningur hjá Manchester United en þar voru tækifærin af skornum skammti.

„Ég tel mig geta fengið tækifæri hjá öðru toppliði því minn draumur er að vinna hluti," sagði Zaha.

„Ég er nógu góður til að keppa við þá bestu. Ef tækifærið kæmi þá myndi ég ekki hafna því, mér líður eins og ég eigi það skilið."

„Ég vil geta sýnt börnunum mínum hvað pabbi þeirra hefur afrekað og unnið."
Athugasemdir
banner
banner
banner