Guimaraes, Silva, Van Persie, Yamal, Gil, Giroud og fleiri í slúðurpakkanum
   lau 22. maí 2021 22:40
Victor Pálsson
Zidane: Tek enga ákvörðun strax
Mynd: Getty Images
Zinedine Zidane ætlar ekki að taka ákvörðun um eigin framtíð strax heldur mun gera það á næstu dögum.

Zidane og hans menn enduðu í öðru sæti spænsku deildarinnar á tímabilinu á eftir Atletico Madrid.

Tímabil Real í heild sinni var afar svekkjandi en liðið vann engan titil í fyrsta sinn frá árinu 2010.

Talið er að Frakkinn muni kveðja Real í sumar en hann vildi ekkert gefa út eftir leik við Villarreal í dag.

„Ég mun ekki taka ákvörðun um framtíðina strax," sagði Zidane eftir 2-1 sigurinn.

„Ég mun ræða við félagið á næstu dögum og svo sjáum við til."
Athugasemdir
banner
banner
banner