banner
   fös 22. júní 2018 12:00
Elvar Geir Magnússon
Íþróttaskór frá Íslandi komnir til Nígeríu
Icelandair
Ísland og Nígería verða mótherjar á fótboltavellinum í dag en utan vallar erum við samherjar.
Ísland og Nígería verða mótherjar á fótboltavellinum í dag en utan vallar erum við samherjar.
Mynd: SOS Barnaþorpin
Þau voru alsæl börnin og ungmennin sem fengu í gær afhenda að gjöf íþróttaskó frá Íslandi í SOS Barnaþorpinu Gwagwalada í Abuja, höfuðborg Nígeríu.

Þetta var fyrsta afhending eftir skósöfnun sem fram fór við Rauðavatn 2. júní sl. Þá söfnuðust yfir 500 pör af íþróttaskóm í tengslum við góðgerðar- og fjölskylduhlaupið Skór til Afríku.

Ákveðið var að safna skónum fyrir SOS Barnaþorpin í Nígeríu af því þjóðirnar eru saman í riðli á HM í Rússlandi. Fjögur SOS Barnaþorp eru í Nígeríu og þar munu skórnir koma að góðum notum. Gríðarleg fátækt er í Nígeríu þar sem 60% íbúa lifa undir fátæktarmörkum. Eins og þessar myndir bera vott um er mikil ánægja með skóna enda eru börnin í Nígeríu með sömu drauma um íþróttaiðkun og önnur börn.

130 Íslendingar styrkja verkefni barnahjálparsamtakanna í Nígeríu með mánaðarlegum framlögum. 320 börn og ungmenni eru í 46 SOS fjölskyldum í þessum þorpum en miklu fleiri njóta aðstoðar samtakanna í gegnum sérstaka SOS fjölskyldueflingu.

Með því að gerast styrktarforeldri hjá SOS Barnaþorpunum gefur þú umkomulausu barni fjölskyldu, menntun, ást og umhyggju. https://www.sos.is/eg-vil-styrkja.
Athugasemdir
banner
banner
banner