Nígerísku stuðningsmennirnir eru ekki margir á götum Volgograd samanborið við þá íslensku. Fótbolti.net hitti þó á nokkra nígeríska stuðningsmennina sem voru dansandi og í góðum gír fyrir leikinn í kvöld.
„Ég er mjög bjartsýnn. Nígería 2. Ísland 0," sagði stuðningsmaður Nígeríu.
„Ég hlakka til að hitta íslensku stuðningsmennina og sjá víkingaklappið."
„Við tökum klárlega víkingaklappið með þeim. Ég er mikill íþróttaaðdáandi og ég mun taka klappið með þeim."
Hér að ofan má sjá viðtalið við stuðningsmennina í heild sinni.
Athugasemdir