Malen, Maguire, Rashford, Greenwood, Yoro, Eriksen og fleiri góðir í slúðri dagsins
   lau 22. júní 2019 16:33
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson
2. deild: Leiknir F. að gera flotta hluti - Vestri í þriðja sæti
Pétur Bjarnason gerði sigurmark Vestra.
Pétur Bjarnason gerði sigurmark Vestra.
Mynd: Fótbolti.net - Eyjólfur Garðarsson
Úr leik hjá Leikni F. í fyrra.
Úr leik hjá Leikni F. í fyrra.
Mynd: Raggi Óla
Leiknismenn frá Fáskrúðsfirði halda áfram að gera flotta hluti í 2. deild karla. Leikni var spáð falli fyrir tímabilið en liðið er á toppi deildarinnar eftir átta umferðir.

Leiknir heimsótti Völsung á Húsavík í dag. Það er erfitt að sækja Völsung heim, en Leikni tókst vel upp í dag. Daniel Garcia Blanco skoraði eina mark leiksins á 35. mínútu.

Leiknir er með 18 stig, tveimur stigum meira en Selfoss á toppi deildarinnar. Völsungur hefur aðeins unnið einn af síðustu fjórum leikjum og er í fimmta sæti.

Vestri er að komast á skrið og hefur núna unnið þrjá leiki í röð. Vestri lagði Dalvík/Reyni að velli í dag. Pétur Bjarnason gerði eina markið á 31. mínútu. Fyrsta mark Péturs í deildinni í sumar.

Vestri er núna í þriðja sæti. Ef lið tengja saman nokkra sigra þá eru þau fljót að klífa upp töfluna í 2. deildinni. Dalvík/Reynir er í áttunda sæti með 10 stig.

Þá vann Fjarðabyggð 3-1 sigur gegn Víði. Annað tap Víðis í röð. Marinó Máni Atlason kom Fjarðabyggð yfir og var staðan 1-0 í hálfleik. Atli Freyr Ottesen jafnaði fyrir Víði á 66. mínútu.

Spánverjarnir Ruben Ayuso Pastor og Gonzalo Bernaldo Gonzalez tóku þá málin í sínar hendur og kláruðu leikinn fyrir Fjarðabyggð. Lokatölur 3-1.

Fjarðabyggð er í sjötta sæti með 12 stig. Víðir er með einu stigi meira í fjórða sæti deildarinnar. Átta umferðum er lokið í deildinni.

Vestri 1 - 0 Dalvík/Reynir
1-0 Pétur Bjarnason ('31)

Völsungur 0 - 1 Leiknir F.
0-1 Daniel Garcia Blanco ('35)

Fjarðabyggð 3 - 1 Víðir
1-0 Marinó Máni Atlason ('8)
1-1 Atli Freyr Ottesen Pálsson ('66)
2-1 Ruben Ayuso Pastor ('75)
3-1 Gonzalo Bernaldo Gonzalez ('85)

Markaskorarar af urslit.net
Athugasemdir
banner
banner
banner