Varnarmaðurinn Mats Hummels hefur gengið í raður Borussia Dortmund á nýjan leik eftir þriggja ára veru hjá Bayern München.
Hummels hefur verið í lykilhlutverki hjá Bayern síðustu tímabil en miklar endurnýjungar eru hjá liðinu. Hinn þrítugi Þjóðverji er uppalinn í Munchen en gengur nú á nýjan leik til Dortmund þar sem hann lék með liðinu tímabilin 2008 - 2016 við góðan orðstír.
Samkvæmt þýska dagblaðinu Bild þá var Hummels með annan möguleika á borðinu - Manchester United.
Bild segir að United hafi boðið honum meiri pening, en Hummels hafi valið að fara í Dortmund út af Meistaradeildinni. Dortmund leikur í Meistaradeildinni á næstu leiktíð á meðan United verður í Evrópudeildinni.
Athugasemdir