Heimild: Football Italia
Sky Sports á ítalíu greinir frá því að Kostas Manolas sé búinn að semja við Napoli
Napoli á eftir að klára viðræður við Roma um upphæð Manolas.
Manolas er með 36 milljón evra losunarákvæði í samning sínum hjá Roma og er búist við því að Napoli muni nýta sér það.
Grikkinn mun koma í stað fyrir Raul Albiol og mun hann vera í hjarta varnar Napoli ásamt Kalidou Koulibaly.
Raul er líklega á förum frá Napoli og lítur út fyrir að hann muni ganga í raðir Villarreal á Spáni.
Athugasemdir