Barcelona og Man City vilja Olmo - Liverpool gæti reynt við Kudus - Chelsea og Barcelona hafa áhuga á Dybala
   mán 22. júní 2020 18:53
Brynjar Ingi Erluson
Árni Vill skoraði í tapi gegn Dynamo Kiev
Árni Vilhjálmsson skoraði í dag
Árni Vilhjálmsson skoraði í dag
Mynd: Kolos Kovalivka
Íslenski framherjinn Árni Vilhjálmsson var á skotskónum í 2-1 tapi FC Kolos Kovalivka gegn Dynamo Kiev í úkraínsku úrvalsdeildinni í dag.

Árni samdi við Kolos í nóvember á síðasta ári en hann hefur gert fjögur mörk á tímabilinu með liðinu.

Hann gerði mark sitt úr vítaspyrnu á 80. mínútu gegn Dynamo Kiev í dag en liðin leika bæði í meistarariðli úkraínsku deildarinnar.

Sex efstu liðin mætast því og berjast um titilinn og Evrópusætin en Kolos er í neðsta sæti riðilsins með 26 stig og er á leið í umspil um Evrópusæti.

Shakhtar er búið að stinga af í deildinni en liðið er með 71 stig eða fimmtán stigum meira en Kiev sem er í öðru sæti.
Athugasemdir
banner
banner
banner